19.04.1982
Neðri deild: 66. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3956 í B-deild Alþingistíðinda. (3469)

217. mál, jarðalög

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa langt mál um erindi mitt í stólinn að þessu sinni. Á sama hátt og með það frv. til ábúðarlaga, sem hér var til umr. næst áður, höfum við hv. þm. Pétur Sigurðsson tekið upp till. landbn. um breytingu á frv. til jarðalaga sem er prentuð á þskj. 529. Ég þarf ekki að skýra till., hún skýrir sig sjálf og var reyndar lýst við 2. umr. þessa máls.