05.11.1981
Sameinað þing: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (357)
41. mál, tölvustýrð sneiðmyndatæki
Guðmundur G. Þórarinsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð.
Öll þessi umr. í dag varðandi tækjakaup til spítalanna hlýtur að vekja menn enn á ný til umhugsunar um nauðsyn þess, að komið verði á skynsamlegri verkaskiptingu milli sjúkrahúsanna. Hún hlýtur að vekja menn til verulegrar umhugsunar um uppbyggingu sjúkrahúsakerfisins í landinu. Þegar ég tala um verkaskiptingu milli sjúkrahúsanna er ég ekki bara að tala um verkaskiptingu milli þessara þriggja stóru spítala sem við höfum hér í Reykjavík, heldur verkaskiptingu í sjúkrahúsakerfinu um allt land. Hér er um gífurlega fjármuni að ræða, eins og margir ræðumenn hafa komið inn á, og mikið nauðsynjamál að tekið sé fyrir. Ég ætla ekki að fara inn á það hér í stuttum ræðutíma, en ég vil hvetja heilbrmrh. til að flýta slíkri samræmingu og slíkri verkaskiptingu svo sem verða má vegna þeirra miklu fjármuna, sem í veði eru, og vegna þess, hversu mikil nauðsyn er að koma hið fyrsta á sem allra bestri nýtingu þeirra fjármuna.
Varðandi aftur á móti innheimtu ríkissjóðs á tollum af heilbrigðistækjum verð ég að segja það, að mér þykja það heldur lítið skynsamleg vinnubrögð að ríkissjóður innheimti tolla af tækjum sem hann greiðir sjálfur. Í rauninni finnst mér það bera vott um að kerfið sé farið að lifa eigin lífi. Ég hygg að í reynd séu allir sammála um að lítil skynsemi sé í því. Hins vegar á það ekki við um öll heilbrigðistæki að ríkissjóður greiði þau eingöngu, og þarna koma fleiri mál inn í.
Ég hef gert það að umræðuefni við fjmrh. undanfarna daga, hvort ekki séu tök á að breyta þessu, hvaða flækjur kynnu að skapast af því. Hann hefur tjáð mér að það sé sérstök nefnd að vinna að þessum tollamálum og hún sé sérstaklega að athuga þann þátt, hvort unnt sé að fella niður tolla af heilbrigðistækjum. En það er ekki einfali mál og menn eru ekki búnir að sjá til fulls hvað það hefur í för með sér, ekki hvað síst vegna þess að skilgreiningin á heilbrigðistækjum er ekki alltaf mjög einföld.