21.04.1982
Neðri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4068 í B-deild Alþingistíðinda. (3624)
107. mál, almannatryggingar
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Í þessari till. eru fjögur efnisatriði.
Það er fyrst gert ráð fyrir að á árinu 1983 verði Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri rekið á beinum fjárlögum auk ríkisspítalanna og að því verði m.ö.o. slegið föstu í almannatryggingalögum að svo eigi að vera. Ég tel að það sé mjög óeðlilegt að slá því föstu í almannatryggingalögum; að reka eigi Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri á beinum fjárframlögum, og teldi miklu eðlilegra að það væri fjvn. sem gerði till. um það mál og Alþingi ákvæði það á fjárlögum hverju sinni, ef ástæða er til. Ég er ekki tilbúinn að samþykkja að Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eigi að reka á föstum fjárframlögum á næsta ári. Ég vil ná um það samkomulagi, ef mögulegt er, við forráðamenn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, með hvaða hætti greiðslum verður háttað til þess á næsta ári. Við getum ekki í þessum efnum gengið svo langt að binda menn á tiltekið greiðslufyrirkomulag nema áður hafi átt sér stað viðræður og kannanir. Við reyndum á s.l. hausti að ná samkomulagi við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Það tókst ekki. Ég tel betra að halda áfram samningaumleitunum en að lögbinda með þeim hætti sem hér er gerð tillaga um. Ég tel þess vegna till. óþarfa og er andvígur henni.
Efnisatriði 2 í þessari till. er það, að settar verði reglur um samræmt bókhald fyrir öll sjúkrahús og aðrar stofnanir sem undir daggjaldakerfið falla eða eru á fjárlögum. Ég tel að þetta sé sjálfsagt mál og þurfi í rauninni ekki að setja þetta inn í lög vegna þess að þetta er þegar í undirbúningi og sömuleiðis þriðja efnisatriðið að endurskoða vísitölu sjúkrahúsakostnaðar, en ég skil það svo, að með orðalaginu reiknilíkön eigi hv. flm. við vísitölu sjúkrahúskostnaðar, að þar eigi að taka tillit til fleiri þátta en nú eru. Í vísitölu sjúkrahúsakostnaðar eru núna 10 atriði. Auðvitað eiga þau að vera miklu fleiri og auðvitað á að fara í saumana á því, hvernig þessum málum er háttað hjá hverju sjúkrahúsi. Ég tel að þetta sé í rauninni alveg sjálfsagt mál. Eins og ég kynnti hv. þd. á dögunum hef ég farið fram á það við daggjaldanefnd, að hún endurskoði vísitölu sjúkrahúsakostnaðar, þannig að það er í gangi allt að einu.
Í fjórða lagi er gert ráð fyrir því í þessari till., að heilbrrh. láti fara fram heildarendurskoðun á gildandi greiðslufyrirkomulagi með það að markmiði að kanna hagkvæmustu framtíðarskipulagningu á greiðsluformi, og skal leggja tillögur þar að lútandi fyrir næsta Alþingi. Þessi könnun hefur verið í gangi. Það hefur verið gerð úttekt á nokkrum sjúkrahúsum á vegum heilbr.- og trmrn. og fjárlaga- og hagsýslustofnunar. Þessi sjúkrahús eru Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, Landakotsspítali, Húsavíkursjúkrahús, Keflavík og Neskaupstaður, og í undirbúningi hefur verið sérstök úttekt á Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík. Ég tel þess vegna að þessi könnun sé í gangi og óþarfi sé að setja ákvæði í lög um hana og beinlínis óeðlilegt að setja þau inn í almannatryggingalög.
Ég tel ekki ástæðu til þess, með tilliti til þess, hvernig tíma deildarinnar nú háttar, að fara mörgum orðum um þetta mál. Ég gæti gert það. Ég virði það við hv. þm., að þeir skuli flytja till. hér til að reyna að leysa þann ágreining sem uppi er í deildinni, en ég er þeirrar skoðunar, að till. geri það ekki og er andvígur henni með þeim rökum, sem ég hef hér lýst, og ætla ekki að fjölyrða um málið frekar.