23.04.1982
Efri deild: 69. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4081 í B-deild Alþingistíðinda. (3658)
272. mál, Kísiliðjan
Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Iðnn. hefur haft til umfjöllunar frv. til l. um aukningu hlutafjár í Kísiliðjunni hf. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að rekja starfssögu Kísiliðjunnar né heldur annað sem viðkemur því frv. sem hér er flutt. Hæstv. ráðh. gerði glögga grein fyrir stöðu Kísiliðjunnar í framsögu með þessu máli svo að ég sé ekki ástæðu til að fara ofan í þá sauma hér. Samkv. frv. er gert ráð fyrir heimild til þess að leggja fram fé vegna aukningar hlutafjár ríkissjóðs í Kísiliðjunni.
Ég vil taka það fram vegna orðskipta sem urðu hér í hv. deild við 1. umr., að ég hafði samband við aðila frá sveitarfélögum á Norðurlandi eystra vegna þess að í frv. er ekki gert ráð fyrir aukningu hlutafjár í eigu sveitarfélaganna til jafns við aukningu hlutafjár í eigu ríkissjóðs. Ég fékk þau svör, að sveitarfélögin gerðu ekkert mál úr þessu, ef ég má svo að orði komast, þetta væri svo lág prósenta hvort eð væri að það hefði alls enga úrslitaþýðingu. Og ég vil minna á það, að sveitarfélögunum stendur ævinlega til boða þrátt fyrir allt að auka hlutafé sitt, auka sína hlutdeild með viðbótarhlutafé, enda þótt ekki sé hugað að því í tengslum við þetta frv. Iðnn. leggur eindregið til að þetta frv. verði að lögum.