23.04.1982
Sameinað þing: 79. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4143 í B-deild Alþingistíðinda. (3726)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Alþingi, 23. apríl 1982. Formaður þingflokks Sjálfstfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkvæmt beiðni Péturs Sigurðssonar, 1. landsk. þm., sem vegna utanfarar í opinberum erindum mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér samkv. 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 2. varamaður landsk. þm., Ragnhildur Helgadóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara rannsókn kjörbréfs í sameinuðu þingi.

Sverrir Hermannsson, forseti Nd.“ Eins og fram kemur í bréfinu hefur Ragnhildur Helgadóttir ekki átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili sem varamaður landsk. þm. og þarf því rannsókn kjörbréfs að fara fram. Vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar og verður fundi frestað á meðan. — [Fundarhlé.]