24.04.1982
Neðri deild: 70. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4156 í B-deild Alþingistíðinda. (3774)
232. mál, öryggisráðstafanir gegn jónandi geislum
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Um nokkurt skeið hafa verið í gildi lög um öryggisráðstafanir gegn jónandi geislum. Sú löggjöf var sett fyrst árið 1962 og er því senn tvítug orðin. Síðan þau lög voru sett hefur það gerst, að í auknum mæli hafa verið teknir í notkun lampar og tæki sem senda frá sér geisla sem ekki eru jónandi. Þessi tæki hafa m.a. stundum verið notuð með þeim hætti að haft hefur í för með sér heilsutjón á viðkomandi einstaklingum, jafnvel mjög alvarleg slys. Hér er um að ræða lampa sem kallaðir eru ýmist gigtarlampar, sólarlampar, sem senda frá sér útfjólubláa geisla, eða hér er um að ræða örbylgjur frá örbylgjuofnum. Því er nauðsynlegt að setja um það lög, að Geislavörnum ríkisins sé heimilt að hafa eftirlit með geislatækjum þó að þau sendi frá sér geisla sem ekki eru jónandi. Því er þetta frv. flutt, herra forseti, og ég legg til, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.