26.04.1982
Neðri deild: 71. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4177 í B-deild Alþingistíðinda. (3830)

193. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Jósef H. Þorgeirsson):

Herra forseti. Allshn. þessarar deildar hefur haft til athugunar frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar. Það er niðurstaða nefndarinnar eftir þá athugun að rétt sé að bæta inn í frv. þremur nöfnum. Jafnframt er það niðurstaða nefndarinnar að rétt sé eftir nánari athugun að niður falli 34. tölul. í frv. eins og það kom frá Ed.

Einn nm., Eggert Haukdal, var fjarverandi afgreiðslu málsins.