27.04.1982
Sameinað þing: 80. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4205 í B-deild Alþingistíðinda. (3870)

Afbrigði vegna almennra stjórnmálaumræðna

Forseti (Jón Helgason):

Áður en gengið verður til dagskrár vil ég leita eftir afbrigðum frá þingsköpum. Í fyrra voru veitt afbrigði frá þingsköpum um að stuðningsmenn ríkisstj. í Sjálfstfl. fengju 20 mínútna ræðutíma í almennum stjórnmálaumr., sem skiptast milli umr. þannig að 10–15 mínútur yrðu í fyrri umferð og 5–10 mínútur í síðari umferð. Ég leyfi mér að leggja til að sami háttur verði hafður á nú í almennum stjórnmálaumr. fimmtudaginn 29. þ.m.