27.04.1982
Sameinað þing: 80. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4213 í B-deild Alþingistíðinda. (3881)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Jón Helgason):

Þegar eftir að hv. 1. þm. Vestf. hafði spurst fyrir um svör við þessari fsp. sinni ræddi ég málið við skrifstofustjóra Alþingis og gerði reyndar grein fyrir því við þá umr., hvernig málin stóðu þá. Ég hef rætt það nokkrum sinnum síðan. Því miður mun þessu starfi ekki vera lokið hjá hv. Alþingi, en að öðru leyti hef ég ekki frekar við það svar mitt að bæta.