28.04.1982
Efri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4277 í B-deild Alþingistíðinda. (3916)

253. mál, ríkisreikningurinn 1978

Frsm.(Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Fjh.og viðskn. hefur tekið fyrir á fundi sínum frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1978. Nefndin ræddi frv. og mæla undirritaðir nm. með að það verði samþykkt. Ólafur Ragnar Grímsson var fjarverandi afgreiðslu málsins. Undir nál. rita Guðmundur Bjarnason, Davíð Aðalsteinsson, Lárus Jónsson, Sigurlaug Bjarnadóttir og Gunnar Thoroddsen.