28.04.1982
Efri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4295 í B-deild Alþingistíðinda. (3958)

30. mál, lyfjadreifing

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég tel ástæðu til að þakka hv. heilbr.- og trn. fyrir að þetta mál skuli þó vera komið á þann rekspöl sem raun ber vitni, að það er búið að afgreiða það úr nefnd. Frv. hefur áður verið lagt fyrir þingið. Þetta er líklega í þriðja eða fjórða sinn sem það er lagt fyrir þingið og hefur reyndar jafnan verið lagt heldur seint fram, nú hins vegar nokkuð snemma þings, þannig að það hefur gefist tími til að fara yfir það. Ég flyt nefndinni þakkir fyrir það mikla starf, sem hún hefur unnið, og vona að það verði til þess að greiða fyrir framgangi málsins.