29.04.1982
Sameinað þing: 83. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4359 í B-deild Alþingistíðinda. (4087)

185. mál, íslenskt efni á myndsnældum

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég vil í örfáum orðum þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu þessa máls og láta um leið í ljós þá von, að þess verði ekki langt að bíða að hæstv. menntmrh. fylgi þessari till. eftir þannig að efni hennar megi í framkvæmd komast.