09.11.1981
Neðri deild: 10. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í B-deild Alþingistíðinda. (411)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Þessari fsp. er fljótsvarað af minni hálfu. Það hefur ekkert verið rætt við mig um þessi mál, hvorki af hálfu bankastjórnar Seðlabankans né formanns bankaráðs Seðlabankans né af formanni bankaráðs Útvegsbankans. Ég hef því í raun og veru ekkert um málið að segja á þessu stigi.