09.11.1981
Neðri deild: 10. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í B-deild Alþingistíðinda. (414)
58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Mér finnst mjög alvarlegt mál þegar einn af þremur viðskiptabönkum ríkisins tekur þá ákvörðun að hætta lánafyrirgreiðslu við atvinnuvegina sem honum er ætlað að sinna. Mér er þvert um geð að trúa því, að bankaráð þessa banka og formaður bankaráðs taki slíka ákvörðun án þess að hafa gert hæstv. ríkisstj. viðvart. Því trúi ég ekki.
Í öðru lagi er mér næst að halda, að þó svo bankaráð Útvegsbanka Íslands hafi tilkynnt þessa afstöðu sína séu fleiri meðal banka og sparisjóða sem hljóta að hugsa einhverjar áþekkar hugsanir og fram komu hjá formanni bankaráðsins um að það sé ekki æskilegt fyrir bankastarfsemi í landinu að standa í því að taka lán á miklu hærri vöxtum en bankarnir veita.
Ég harma það mjög, að hæstv. bankamálaráðh. og aðrir þeir ráðh., sem hér eru viðstaddir, hafa ekkert að segja í þessu máli og engar skoðanir fram að færa og vilja raunverulega ekkert um málið vita.