09.11.1981
Neðri deild: 10. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í B-deild Alþingistíðinda. (424)
Umræður utan dagskrár
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það sótti á mig sú hugsun undir ræðuflutningi, hvort veröldin væri við hæfi Íslendinga. Það er nefnilega stóralvarlegt mál ef við komumst nú að því allt í einu hér, að við séum svo miklu betri en sú veröld sem er í kringum okkur að hún sé alfarið ekki við okkar hæfi. Kínverjar komust einu sinni að þessari niðurstöðu og hlóðu eitthvert frægasta mannvirki sem búið hefur verið til og stendur enn. Mér er sagt að það sjáist utan úr geimnum meira að segja. Sósíaldemókratar í Svíþjóð framleiða vopn og selja um allan heim. Hafa þeir aldrei sagt sósíaldemókrötum á Íslandi frá því?
Ef menn hafa lesið það góða leikrit Kappar og vopn hafa þeir e. t. v. komist að því, að einn af hermönnunum komst að þeirri niðurstöðu, að það væri meira virði fyrir hann að hafa súkkulaði heldur en kúlur í patrónunum, því að það yki líkur á að hann slyppi lífs ef það væri súkkulaði. Hvað er það sem má flytja til þjóðar sem stendur í stríði? Er það bara vopn? Er ekki maturinn fyrir herinn jafnmikils virði? Vitum við neina sá fiskur, sem við erum að selja til Sovétríkjanna, hafi verið étinn um borð í kafbátnum sem strandaði í skerjagarðinum? Eða er hann fóður fyrir þá sem eru að berjast í Afganistan? Hvar endar þetta? Það þarf að senda fjölda manns út fyrir landsteinana til að athuga þessi mál. Ég er ekki viss um að það yrðu margir eftir hér á skerinu, ef við þyrftum að kanna þetta allt til fullnustu.
Ég held að fram hafi komið í upphafi máls Benedikts Gröndals, hv. 4. þm. Reykv., það sem máli skiptir. Auðvitað getum við ekki hagað utanríkisviðskiptum eftir því, hvort þjóðir haldi upp stjórnarstefnu sem okkur geðjast að eða ekki. Ég fyrir mína parta mundi ekki hika við að leggja það til, ef ég teldi að við gætum það, að við hættum viðskiptum við mjög margar þjóðir. Við getum það bara einfaldlega ekki, hversu góða sem við teljum okkur vera. Ég held að við ættum að halda okkur við alþjóðlegar samþykktir varðandi flutninga, en láta okkur ekki detta í hug að ætla að vera eitthvert sýningarfyrirbrigði í góðmennsku hér uppi á Íslandi.