03.05.1982
Sameinað þing: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4508 í B-deild Alþingistíðinda. (4271)
246. mál, viðauki við vegáætlun 1981--1984
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég verð að segja, að fyrst þegar ég leit þessa þáltill. fannst mér hún næsta óþörf, nema þá þannig verði litið á að hún veiti hæstv. ríkisstj. heimild til þess að afla sérstaks viðbótarfjár til vegáætlunar á árinu 1982. Ég býst við að hæstv. ríkisstj. hefði verið heimilt að veita Framkvæmdastofnun ríkisins eða Byggðasjóði heimild til að taka slíka fjárhæð að láni til þessarar fjárveitingar. Það er misskilningur að hér sé um lán að tefla. Þetta er framlag Byggðasjóðs, helmingurinn af þeim 20 millj. sem stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins hefur boðið fram í þessu skyni á þessu ári.
Ég held að skýring á flutningi þessarar till. hljóti að felast í skiptingunni sem þarna kemur fram, sem auðvitað hefði mátt vinnast með þeim hætti sem venja er til: af fjvn., styrkveitanda og Vegagerðinni og málinu á þann veg ráðið til lykta.
Út af fyrir sig hef ég enga gagnrýni í frammi sérstaklega vegna þessarar aðferðar, en vek þó athygli á því, að ég hef ekki heyrt neinar skýringar á eða rökstuðning fyrir þessari skiptingu fjárins. Það kemur reyndar í ljós í grg., að framkvæmdirnar séu dýrar og tvær þeirra, í Ólafsvíkurenni og Ólafsfjarðarmúla, séu með þeim hætti að þær gagnist ekki umferð fyrr en þeim er lokið, en aftur á móti komi í Óshlíð minni áfangar að gagni. Þetta finnst mér stríða gegn skiptingu fjárins, eins og skiptingin er í tillögunni.
Ég var að vænta þess, að hið háa Alþingi fengi tækifæri til að ræða vegáætlun, langtímaáætlunina, sem mér skilst að samgrh. hafi í hyggju að leggja hér fram áður en þingi lýkur. Á því hafði ég alveg sérstakan áhuga, alveg sérstaklega af því að bikhausar gulu pressunnar eru byrjaðir að hæla hæstv. ráðh. alveg sérstaklega fyrir stórkostlegt framtak í vegamálum. Þó standa hv. alþm. frammi fyrir því, að sú langtímaáætlun til 12 ára, sem þeir samþykktu hér á s.l. vori, er öll þegar gengin úr skorðum. Framkvæmdaáætlunin í ár gengur úr skorðum stórkostlega og hæstv. samgrh. hefur ekki hreyft legg né lið til að bæta úr því ófremdarástandi, hvað svo sem segir hjá surtum gulu pressunnar, — ekki legg né lið. Ekki eina einustu krónu hefur hann haft með höndum að útvega til að bæta úr fjárskorti, 28 millj., á sjálfri vegáætluninni og ómældum fjárfúlgum samkv. hans eigin yfirlýsingum, þrí- eða fjórendurteknum á hinu háa Alþingi, um sérstaka fjárútvegun vegna ÓÓÓ-veganna, 184 millj. kr. verkefni, sem hann, þrátt fyrir yfirlýsingar sínar um að afla sérstaks fjár til þess arna, ætlar að taka af hinni almennu vegáætlun, langtímaáætluninni.
Hver er svo niðurstaðan? Hér hafa hv. alþm., hver í sínu kjördæmi, verið að strita við það enn á ný að hrinda af stað framkvæmdum samkv. þeirri samkomulagsályktun út af langtímaáætluninni. Ég get nefnt ykkur sem dæmi í Austurlandskjördæmi 112 km samtals og þar af meginhlutann sem átti að byggja upp, nýbyggingu vega, a.m.k. 75 km sem ég man eftir. Þetta er auðvitað að bregðast þeim viljayfirlýsingum sem Alþingi gaf og allir hv. þdm. náðu höndum saman um á síðasta vori.
Ég tek það fram, af því að það er þessu máli skylt, af því sem ég sagði, að það á að bregðast marggefnum yfirlýsingum um sérfjárútvegun til Ó-veganna og taka það fé af hinni almennu vegáætlun, að ég hef alla fyrirvara á um samþykki við væntanlega þáltill. um langtímavegagerð sem mér er tjáð að hæstv. samgrh. hyggist leggja fram áður en þessu þingi lýkur, en við e.t.v. fáum ekki tækifæri til að ræða um, — alla fyrirvara. Og ég hygg að minn flokkur, Sjálfstfl., muni hafa það og hann muni beita sér fyrir því við endurskoðun fjögurra ára áætlunar hverju sinni, — eins og við þekkjum eru það þrisvar sinnum fjögur ár, — að reyna að,bæta hér úr og að staðið verði við þá áætlun og þál. sem gerð var á s.l. ári. Það er hörmulegt að sjá hvernig menn þegar víkja sér undan og draga lappirnar innan árs frá því sem menn gera lokasamþykkt, að því sem maður taldi sér trú um, um stórátak í vegamálum. Og það er þeim mun hörmulegra að þeir skuli ekki bregða við þar sem góðir, dyggir og göfugir stuðningsmenn í Dagblaðinu og Vísi hafa uppgötvað að þannig væru þeir samt í laginu.
Ég ætla, herra forseti, ekki að tala lengra mál að þessu sinni. Málið, langtímavegáætlunin, hefur ekki enn verið sýnt. Hún er væntanleg á hverri stundu, en ég gríp tækifærið, og fer ekkert út fyrir umræðuefni þessa dagskrárliðar, til þess að lýsa þessari afstöðu minni og gagnrýna harðlega að þannig skuli að málum staðið.