04.05.1982
Neðri deild: 81. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4611 í B-deild Alþingistíðinda. (4412)

178. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Það hefur komið fram í fyrri umr. um þetta mál, að hæstv. fjmrh. var ekki spurður áður en málið var afgreitt úr hv. fjh.- og viðskn. Í trausti þess, að hv. fjh.- og viðskn. Nd. afgreiði önnur frumvörp um tekjuskatt og eignarskatt, sem þar liggja fyrir, og einkum og sér í lagi þau sem koma frá stjórnarandstöðunni, þá segi ég já.