04.05.1982
Neðri deild: 82. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4621 í B-deild Alþingistíðinda. (4425)

242. mál, orlof

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Mér virðist að nú sé þannig að stjórnun staðið að nokkuð slitni í sundur umræður um mál. Ég tel það mjög miður þegar ráðherrar hafa gefið út vanhugsaðar yfirlýsingar, þó í fljótræði sé, að þeim sé alfarið sleppt við að bera ábyrgð á orðum sínum og málið saltað eins og gert var nú rétt áðan.