04.05.1982
Neðri deild: 82. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4622 í B-deild Alþingistíðinda. (4428)

242. mál, orlof

Ingólfur Guðnason:

Herra forseti. Mér þykir tilhlýðilegt, þegar hæstv. fjmrh. lýsir yfir í þessari ágætu deild að eitthvert eitt mál sé það vitlausasta mál sem hafi verið flutt á Alþingi, að honum sé gefinn kostur á að skýra fyrir hv. deild hvað hann á við. Raunar verð ég að krefjast þess, að forseti sjái af örfáum mínútum honum til handa til þess að svo megi verða.