04.05.1982
Efri deild: 84. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4664 í B-deild Alþingistíðinda. (4477)

314. mál, dýralæknar

Frsm. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá landbn. um frv. til I. um breytingu á lögum nr. 77 frá 1. okt. 1981, um dýralækna. Nefndin hefur fjallað um málið á fundum sínum og er sammála um að mæla með samþykkt þess eins og það kom frá Nd. Ég ætla hins vegar að biðja menn um að gera eina leiðréttingu á frv. Í 20. tölul. frv. stendur Norðurlandsumdæmi, en það á að vera Norðausturlandsumdæmi.