05.05.1982
Neðri deild: 85. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4681 í B-deild Alþingistíðinda. (4509)

279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Með skírskotun til greinargerðar með atkv. mínu við 2. umr. málsins sit ég hjá við lokaatkvgr. málsins. Ég vil taka fram, að það geri ég vegna þess að málið hafði verið ítarlega rætt í þingflokki sjálfstæðismanna, ég hafði gert grein fyrir afstöðu minni þar, og afstaða flokkssystkina minna er stuðningur við frv. eða svo var við 2. umr. Mér er óljúft að ganga alveg gegn þeim. En ég vil ekki samþykkja þetta frv. af þeim ástæðum sem ég greindi við 2. umr., tel það auk þess óþarft og greiði því ekki atkv.