05.05.1982
Neðri deild: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4715 í B-deild Alþingistíðinda. (4548)

145. mál, málefni fatlaðra

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég vil taka fram að ég hafði fyrir margt löngu lofað umr. um dagskrármálið sem nú er til umr. og hefur frsm. félmn. lokið framsögu sinni.

Nú verður umr. um málið haldið áfram og eru á mælendaskrá 10. þm. Reykv., hv. 10. landsk. þm. og félmrh. Aðrir munu ekki fá orðið að sinni um þennan málaflokk og fer ég fram á að hv. ræðumenn stytti mál sitt.