06.05.1982
Neðri deild: 87. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4781 í B-deild Alþingistíðinda. (4582)

220. mál, fóðurverksmiðjur

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Það er fjarri því, að ég hafi verið að beina þessum orðum til forseta eða viljað særa hans mjúka geð. Ég var að tala um landbn. hv. deildar og hraða á störfum hennar. (Forseti: Ég heyrði rétt til, að hv. þm. talaði um að það væri slíkur hraði á afgreiðslu mála hér í hv. deild.)