10.11.1981
Sameinað þing: 17. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í B-deild Alþingistíðinda. (460)
Umræður utan dagskrár
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Víst veit ég að Framkvæmdastofnun ríkisins skiptir miklu máli. En ég verð að segja það, að mér finnst æðihart aðgöngu ef störfum Alþingis er frestað vegna starfa Framkvæmdastofnunar ríkisins. Þetta vildi ég láta fram koma strax. Ef hæstv. forseti sér sér alls ekki fært að halda áfram þingstörfum vegna starfa Framkvæmdastofnunar ríkisins vildi ég biðja hann að beita sínum persónulegu áhrifum til þess, að störfum Framkvæmdastofnunar ríkisins verði frestað að þessu leyti svo að Alþingi geti lokið því sem það er að ræða um.