07.05.1982
Neðri deild: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4913 í B-deild Alþingistíðinda. (4695)
242. mál, orlof
Frsm. minni hl. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Eins og fram hefur komið gerði Ed. breytingu á þessu frv. eftir afgreiðslu þessarar deildar á málinu. Í ljós kom við athugun á þessu máli í félmn. Ed., að brtt. sú, sem samþykkt var í þessari hv. deild, nær alls ekki því markmiði sem að var stefnt með þessu frv., að atvinnurekendur geti ekki sent launþega í sumarleyfi í mánuðum, sem eru utan við hina hefðbundnu orlofsmánuði, nema með samþykki launþegans. Hér er að vísu ekki um vandamál að ræða nema á sumum af stærri vinnustöðunum. En hver getur séð sjálfan sig í því að vera skipað í frí á haustmánuðum eða í maímánuði, sem er kannske utan við allar áætlanir fjölskyldu um sumarleyfi. Samkomulag varð ekki í nefndinni um þá breytingu sem Ed. lagði til, en minni hl. leggur til að deildin samþykki þá breytingu, sem samþykkt var shlj. í Ed. og félmn. þeirrar deildar stóð einhuga að.