07.05.1982
Sameinað þing: 91. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4930 í B-deild Alþingistíðinda. (4739)

Þinglausnir

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Í nafni okkar alþingismanna vil ég þakka hæstv. forseta fyrir góða og réttláta fundarstjórn, og ég þakka honum samskiptin öll við okkur þm. Ég þakka líka starfsliði þingsins og skrifstofustjóra allt þeirra starf. Ég vonast til að við megum hitta forsetann heilan og hressan á hausti komanda. Ég árna honum og fjölskyldu hans alls hins besta í sumar. Ég bið hv. alþm. að taka undir þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]