11.11.1981
Neðri deild: 11. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 643 í B-deild Alþingistíðinda. (489)

73. mál, Framkvæmdasjóður aldraðra

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég kem hér aftur í ræðustól vegna þess að hæstv. ráðh. hefur ekki svarað þeim spurningum sem ég lagði fyrir hann.

Ég sagði ekki að hann hefði ekki nefnt hér þá nefnd sem hér væri um að ræða og væri að fjalla um þetta frv. Það kemur fram í grg. þess frv. að það er nefnd að störfum til að vinna að því frv. Ég lagði fyrir hann þá spurningu, hvenær við mættum vænta að frv. yrði lagt fram, hvort það yrði t. d. á þessu þingi, hvort það yrði fyrir jól eða eftir áramót eða yfirleitt á þessu þingi. Einnig beindi ég til hans spurningu um hverjir það væru sem skipuðu þessa nefnd. Við þessum spurningum hef ég enn ekki fengið svar.