16.11.1981
Neðri deild: 12. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (548)

96. mál, tímabundið vörugjald

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég vil taka fram að hæstv. fjmrh. er ekki viðlátinn, svo sem hv. þdm. er fullkunnugt um. Þetta mál er gamalt og margrætt í hv. deild. Það gefst enn kostur á því við tvær viðbótarumr. að ræða þetta gamalkunna mál eftir að það kemur frá meðferð nefndar, sem enn mun skýra það að því leyti sem það er mönnum óljóst. (HBl: Það gæti dagað uppi.) Það er forseti sem ber ábyrgð á þessari málsmeðferð.