16.11.1981
Neðri deild: 12. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í B-deild Alþingistíðinda. (578)
70. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Flm. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. á þskj. 73 um breyt. á lögum nr. 101 frá 8. des. 1966, um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarafurðum o. fl., svo sem segir í fyrirsögn frv. Þetta frv. var raunar áður flutt á 103. löggjafarþinginu, en það var mælt fyrir því seint á vetrinum svo að það hlaut eigi afgreiðslu.
Ég þarf ekki að hafa mörg orð um efni frv. að þessu sinni. Það, sem hér er um að ræða, er að lagðar eru til breytingar á nefndum lögum í þá veru, að einokunarákvæði um sölu á matjurta- og gróðurhúsaframleiðslu falli niður. Eftir sem áður er gert ráð fyrir að Framleiðsluráð landbúnaðarins fari með yfirstjórn sölumála matjurta- og gróðurhúsaafurða, svo sem segir í 32. gr. þeirra laga.
Þá ber að leggja á það áherslu, að í þessu frv. er einnig gert ráð fyrir að Sexmannanefnd ákveði ekki verð á þeim matvælum sem hún fjallar um, heldur ákvarði hún hámarksverð, þannig að leyft verði að selja á lægra verði.
Breytingar á þessum lögum í þessa veru hafa oft verið lagðar fyrir hið háa Alþingi, í ýmsum myndum raunar og af ýmsum þm., en hafa hins vegar ekki hlotið náð fyrir augum meiri hluta þingsins. Þessi rök hafa svo sem oft áður verið flutt, en á það má þó leggja áherslu, að grænmetisneysla hefur á undanförnum árum mjög verið að færast í vöxt. Hún skipar æ stærri sess í matvælaneyslu landsmanna, og auðvitað ber að gera allt sem í valdi opinberra reglna stendur til að stuðla að þessari neyslu og þessari aukningu, þó ekki væri nema af þeirri einföldu ástæðu að hér er um hollan varning að ræða. Það er auðvitað alveg ljóst, að grænmetisbyltingin, sem svo er stundum kölluð, er þróun í neyslu, þróun að því er matvæli varðar sem ber að hlúa að, að svo miklu leyti sem hægt er. Það er til að stuðla að slíkum breytingum sem þetta frv. er flutt af sex þm. Alþfl.
Ég vil að lokum, herra forseti, leggja til að málinu verið vísað til 2. umr. og hv. landbn.