17.11.1981
Sameinað þing: 20. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (647)
331. mál, gróði bankakerfisins
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég get ekki neitað því, að þessi umr. gleður mitt hjarta talsvert, sérstaklega að heyra stjórnarsinna takast á. Þó er ég þeirrar skoðunar, að það sé varla þess virði að eyða svo miklu púðri á hv. þm. Ólaf Ragnar Grímsson sem hér hefur verið gert. A. m. k. gera flokksbræður hans það ekki, því að enginn þeirra hefur stutt við bakið á honum í þessum umr.
Ég vil segja það við hæstv. viðskrh., ef hann hefur ekki þegar komist að því, að það er ekki hægt að stjórna efnahagsmálum með Alþb. Það hefur komið skýrt í ljós hér, að þegar ekki er hægt að finna peninga í bankakerfinu, sem Alþb. kallar gróða, þá er Alþb. bara tilbúið að láta prenta þá. Þetta eru aðferðir Alþb. Þess vegna gleður það mitt hjarta, að stjórnarsinnar skuli nú vera farnir að deila, af þeirri einföldu ástæðu að Alþfl. lagði fram við stjórnarmyndun 1978 ákveðna efnahagsstefnu sem hann vildi starfa eftir. Þegar ljóst var að sérstaklega Alþb. vildi ekki starfa samkvæmt þeirri,stefnu, þá rauf Alþfl. samstarfið og sagði að það yrði að fara eftir þessari stefnu, ella færi illa. Það, sem Alþfl. sagði þá, er að koma í ljós núna, herrar mínir. Þetta vil ég að öllum sé ljóst hér inni. Sú umr., sem hér hefur farið fram, gerir ekkert annað en að sanna þann ágreining sem nú er kominn upp á milli stjórnarsinna um það, hvernig skuli búa til peninga til þess að geta haldið atvinnurekstrinum í landinu gangandi. Um það snýst þetta mál: að búa til gróða sem ekki er til.
Ég held nú að öllum hljóti að fara að verða ljóst að það samstarf, sem tekist hefur í núverandi ríkisstj. um svokallaða efnahagsstefnu, er bull og vitleysa.