18.11.1981
Efri deild: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (680)

68. mál, flugmálaáætlun

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég vildi aðeins láta heyra í mér hér. Mér sýnist hér vera um mál að ræða sem eigi fullan rétt á sér, að sett séu lög um flugmálaáætlun og flugmálum þannig skipað á sama bekk og öðrum samgöngumálum, og því vil ég lýsa stuðningi mínum við meginatriði þessa frv.