19.11.1981
Sameinað þing: 22. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 917 í B-deild Alþingistíðinda. (718)
321. mál, húsnæðismál
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það er orðið nokkuð um liðið frá því að ég bað um orðið og þess vegna margt af því komið fram sem ég vildi segja. En í fáum orðum sagt sýnist mér að hér hafi verið rædd tvö alls óskyld mál raunverulega. Annars vegar liggur ljóst fyrir, að vegna þeirrar tækniþróunar, sem orðið hefur, þarf að setja nýja löggjöf um þessi mál. Jafnframt fæ ég ekki séð að það sé rétt að biða lengi eftir því að höfða prófmál til að kanna hvort lög hafi verið virt eða hvort þau hafi verið brotin. Mér sýnist að þau hafi verið brotin, og ég held að það sé rétt að höfða prófmál í því skyni. Ég verð að segja að mér finnst saksóknari hafa verið ákaflega hógvær og aðgerðalítill á þessu sviði. Það má vel vera að hann hafi ekki fylgst með þeirri þróun sem þarna hefur átt sér stað, eða þá að hann telji hana rétta samkv. lögum. En það hlýtur að liggja alveg ljóst fyrir, að þar til lögum hefur verið breytt hljóta menn að vera dæmdir samkv. þeim lögum sem eru í landinu. Komi menn með tillögur um sakaruppgjöf er það þriðja málið. Það þyrfti þá alveg sérstaklega að taka það fyrir hér í sölum þingsins.