19.11.1981
Sameinað þing: 22. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (723)
49. mál, útgáfa nýs lagasafns
Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég hef á þskj. 52 lagt fram fsp. til dómsmrh. svohljóðandi: Hvort er þess að vænta, að senn sjái fyrir endann á útgáfu nýs lagasafns, eða hversu verður henni háttað?“ Síðasta lagasafn var gefið út 1973. Upplag þess er af svo skornum skammti, að í Þórshamri, þar sem eru nefndaherbergi þingsins, hafa ekki verið til eintök af lagasafninu sem þm. gætu notað við nefndarstörf sín og hefur þurft að senda í önnur hús ef nauðsynlegt hefur þótt að fletta upp lögum. Aðeins til að gefa hugmynd um þann mikla lagafjölda, sem við bætist á hverju ári, hef ég gert athugun á því s. l. 5 ár. Árið 1976 voru 63 lög samþykkt, 1977 108, 1978 82, 1979 63 og 1980 97.
Í lögum um laganefnd frá 1929 er gert ráð fyrir að lagasafn skuli gefið út að nýju a. m. k. á 10 ára fresti og þá gætt þeirra breytinga sem orðið hafa á löggjöfinni. Þetta eru nú úrelt lög orðin, hálfrar aldar gömul, og óhjákvæmilegt að nýtískulegri vinnubrögð séu tekin upp en verið hefur þannig að lagasafnið megi oftar koma út eða þá hægt sé að nýta, kannske í breyttri útgáfu, jafnvel lausblaðabindi, — ég hef ekki vit á því, hvort hægt sé að beita tölvutækni í sambandi við útgáfu lagasafns.
Það má öllum ljóst vera, að bæði löggjafarstarf og dómsstörf eru mjög erfið eins og sakir standa. Það þarf sérfræðinga til að ganga úr skugga um hvaða lög gildi um einföldustu efni. Þetta er náttúrlega ófremdarástand sem veldur mönnum óþægindum, töfum, fyrirhöfn og kostar stórfé fyrir borgara landsins, eins og auðvelt er að sýna fram á.
Þessi fsp. er lögð fram til að reka á eftir því, ef hægt yrði, að nýtt lagasafn yrði gefið út, og spurt hvort þess sé að vænta, að senn sjái fyrir endann á útgáfu nýs lagasafns, eða hversu henni verði háttað.