24.11.1981
Sameinað þing: 24. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í B-deild Alþingistíðinda. (800)

329. mál, heilbrigðisþjónusta

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Eins og fram hefur komið í ræðum hjá mér hér í þinginu fjórum sinnum s. l. tvær vikur er nú unnið að undirbúningi reglugerðar um samstarf sjúkrahúsa í fyrsta lagi og í öðru lagi um heilsugæslustöðvar. Þessi reglugerð sér vafalaust dagsins ljós einhvern tíma á næstu mánuðum. Að þessu hefur verið unnið af fullum krafti alveg frá því í apríl 1980. Áður hafði lítið verið gert í þessum efnum.