25.11.1981
Neðri deild: 15. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1079 í B-deild Alþingistíðinda. (857)
46. mál, land í þjóðareign
Flm. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Ég hélt að ég hefði komið því til skila áðan, en ég skal þá endurtaka það enn frekar hv. þm. til upplýsingar, að ég hef ekki gefið og gaf aldrei út nein fyrirmæli til eins né neins um að draga útgáfu ávísana úr ríkissjóði eða senda síðar út greiðslu fyrir reikninga eða fé úr ríkissjóði en áður hafði verið gert. Ég skora á hv. þm. að leita sér heimilda fyrir þessu hjá starfsmönnum fjmrn. Ég vísaði honum í ríkisreikning fyrir þetta ár því þar liggur þetta fyrir svart á hvítu, en hv. þm. virðist enn ekki hafa skilið þetta meginatriði. Ég vísa honum þá að leita sér upplýsinga hjá þeim aðilum sem best vita.
Í annan stað er það rangur skilningur hjá hv. þm., að það frv., sem hér er lagt fram, byggist á norskum lögum um sama efni. Það hefur aldrei komið fram, hvorki í grg. frv. né í ræðu minni. Hins vegar skýrði ég frá því, að norska ríkisstjórnin hefði látið gera sams konar könnun á, hver mörk almannaeignarréttar og einkaeignarréttar væru, og lagt er til að gerð verði í þessu frv. Um síðari tíma sögu Noregs að öðru leyti ætla ég ekki að deila við hv. þm., en e. t. v. má vænta nýrrar Heimskringlu úr Reykholti.