02.12.1981
Efri deild: 16. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (933)

75. mál, aðstoð í skattamálum

Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Nefndin hefur fjallað um það frv. sem hér er til umr. Það felur í sér breytingar á samningi sem Norðurlandaþjóðirnar höfðu áður gert sín á milli. Leggur nefndin eindregið til að frv. verði samþykkt og samningurinn, eins og hann hefur verið endurskoðaður, þannig staðfestur af Alþingi.