18.12.1982
Efri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1262 í B-deild Alþingistíðinda. (1059)

56. mál, fjörutíu stunda vinnuvika

Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Hér er um að ræða frv. sem er fylgifrv. með því frv. sem Ed. var að fjalla um og samþykkja fyrir stuttu. Meiri hl. félmn. leggur til að þetta verði samþ. Þann meiri hl. skipa á sama hátt og áður fulltrúar þriggja flokka í n., Framsfl., Alþb. og Alþfl.