18.12.1982
Efri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í B-deild Alþingistíðinda. (1078)

136. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Það er upplýst og kemur fram í nál. að sveitarfélögin sjálf hafa ákveðið að leggja lægri fasteignaskatta á heldur en kemur fram í þessari till. Ég get upplýst að það hefur ekki verið hægt að koma saman fjárlögum vegna þess að ríkisstj. undirbýr nýjan skatt á bílaeigendur í landinu til þess að afla fjár til vegamála. Ríkisstj. ætlar því að halda áfram sínum skattahækkunum. Ég segi nei.