18.12.1982
Neðri deild: 23. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1269 í B-deild Alþingistíðinda. (1093)

28. mál, málefni aldraðra

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil aðeins segja frá því að hv. heilbr.- og trn. Nd. sat fund með Ed.mönnum til að fjalla um fram komna breytingu og raunar frv. allt. Við höfum orðið sammála um að fallast á breytinguna sem liggur fyrir á þskj. 199. Hún er í því fólgin að lögin fá svokallað sólarlagsákvæði. Hér segir með leyfi forseta: „Lög þessi gilda frá 1. jan. 1983 til 31. des. 1987.“ Heilbr.- og trn. er sammála þessari breytingu.