18.12.1982
Neðri deild: 23. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1269 í B-deild Alþingistíðinda. (1098)

Þingfrestun

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd þdm. þakka hæstv. forseta hlýleg orð og góðar kveðjur okkur til handa. Ég þakka honum fyrir skörulega, glaðværa og réttláta fundarstjórn á þessu þingi sem fyrr. Ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og vænti þess, að við hittum hann heilan og hressan að jólahaldi loknu. Ég vil ennfremur þakka skrifstofustjóra og starfsliði öllu samstarfið og árna þeim öllum gleðilegra jóla. Ég vil biðja þdm. að rísa úr sætum og taka undir orð mín. [Deildarmenn risu úr sætum.]