18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1162)

1. mál, fjárlög 1983

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Þegar hæstv. fjmrh. gerði grein fyrir þessari till. ríkisstj. tók hann skýrt fram að þessi till. væri framlenging á hliðstæðri till. sams konar, sem samþykkt var á síðasta þingi, og þessari till. væru tengdir nákvæmlega sömu starfshættir varðandi ráðstöfun þessa fjár eins og voru tengdir þeirri upphæð, en í grg. fyrir fjárlagafrv. kom skýrt fram að það væri háð samþykki allra ráðherra í ríkisstj. með hverjum hætti þessari fjárveitingu væri ráðstafað. Á grundvelli þeirrar yfirlýsingar, sem hér var flutt fyrr í dag fyrir hönd ríkisstj. segi ég já.