17.01.1983
Sameinað þing: 37. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í B-deild Alþingistíðinda. (1170)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forseti (Jón Helgason):

Ég þakka hæstv. forsrh. árnaðaróskir í garð okkar alþm. Jafnframt óska ég hæstv. ríkisstj., hv. alþm. og starfsliði Alþingis gleðilegs árs, þakka fyrir liðið ár og býð menn velkomna til starfa á nýju ári.