18.01.1983
Efri deild: 28. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)
85. mál, efnahagsaðgerðir
Forseti (Helgi Seljan):
Ég vil taka það fram út af orðum hv. 11. þm. Reykv. að ég tók það svo að hann væri að óska eftir umr. um þingsköp en ekki málið sjálft. Hins vegar teldi ég eðlilegast að umr. gæti nú farið í þann farveg að við tækjum dagskrármálið upp að nýju og hefðum áframhaldandi umr. um það.