13.10.1982
Sameinað þing: 2. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (12)

Embættisfærsla sýslumanns á Höfn í Hornafirði

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist fsp., hvort leyfð skuli, sem mér finnst ekki falla að ákvæðum þingskapa um fyrirspurnir og hef því ekki samþykkt, en fyrirspyrjandi hefur óskað eftir að hún verði borin upp í Sþ., hvort leyfð skuli. Fsp. er um embættisfærslu sýslumanns á Höfn í Hornafirði og er svohljóðandi:

„Hefur dómsmrh. talið ástæðu til að gera athugasemdir við embættisfærslu sýslumanns á Höfn í Hornafirði hinn 18. ágúst sl.?“

Fsp. er frá Vilmundi Gylfasyni.