26.01.1983
Efri deild: 32. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1542 í B-deild Alþingistíðinda. (1303)

154. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Hér með fylgi ég úr hlaði frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar. Þetta frv. er sama efnis og frv. þau sem að venju eru lögð fram á hverju reglulegu Alþingi. Það hefur að geyma nöfn 17 erlendra ríkisborgara sem óska eftir því að öðlast íslenskan ríkisborgararétt.

Ég tel ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um frv. á þessu stigi, en leyfi mér að óska þess að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.