01.02.1983
Sameinað þing: 43. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (1380)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Jón Helgason):

Það hefur komið fram beiðni um frestun á fundum nú og mun ég verða við því. Í sambandi við framhald þessa máls, þá gat ég ekki tekið þá þáltill. sem rætt var um á dagskrá fyrr en nál. lá fyrir frá utanrmn., en mun vitanlega taka það til athugunar ef fram kemur nál. síðar í dag. — [Fundarhlé.]