01.02.1983
Sameinað þing: 44. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1656 í B-deild Alþingistíðinda. (1390)
Þingsköp
Forseti (Karl Steinar Guðnason):
Ég vil að gefnu tilefni upplýsa það, að mér var eigi kunnugt um þessar viðræður hv. þm. við forseta og veit því ekkert um þær, en það er hans ákvörðun hvort tekið verður til máls utan dagskrár eða ekki, ef það er leyft. Ég hef gert ráðstafanir til þess að hann verði sóttur og hann mun þá taka afstöðu til þess.