09.02.1983
Efri deild: 39. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1799 í B-deild Alþingistíðinda. (1555)

97. mál, þjóðsöngur Íslendinga

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Hv. allshn. Ed. hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt frv. með brtt. sem hún flytur á þskj. 291. Sú brtt. er á þá lund að fella niður 2. málslið 3. gr. frv. og sameina 3. og 4. gr. Ég er samþykkur þessari brtt. og mæli með því að hún verði samþykkt.

Ég vil nota tækifærið til að þakka hv. allshn., og alveg sérstaklega formanni hennar og frsm., hv. 5. þm. Vesturl., Eiði Guðnasyni ágæta afgreiðslu málsins.