01.11.1982
Neðri deild: 6. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (161)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf dags. 28. oki. 1982:
„Vegna utanfarar í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis leyfi ég mér að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, Níels Á. Lund, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Stefán Valgeirsson,
2. þm. Norðurl. e.“
Níels Á. Lund hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili. Þarfnast kjörbréf hans því ekki rannsóknar. Ég býð hann velkominn til starfa.