11.02.1983
Neðri deild: 37. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)

Um þingsköp

Forseti (Alexander Stefánsson):

Hv. 6. þm. Reykv. hefur óskað eftir að fá að taka hér til máls um þingsköp. Ég vil minna á að þetta er í miðri umr. um dagskrármálið og mun það ekki hafa komið oft fyrir hér að umr. sé rofin á þennan hátt. Ég mun þó gera undantekningu og gefa hv. þm. orðið um þingsköp.